Færsluflokkur: Sveitarstjórnarkosningar

Gestkvæmt í Kosningakaffi M-Listans

IMG_2354IMG_2332IMG_2333IMG_2336IMG_2338IMG_2344IMG_2348IMG_2350IMG_2351IMG_2353


Kosningakaffi Miðflokksins í Múlaþingi

 

Kosningakaffið er kl 14:00

 

Skrifstofan opin frá klukkan 10:00

 

Heitt á könnunni í allan dag.


Við höfum kjark til að breyta.

Ég er aðfluttur andskoti eins og það er stundum orðað og frá því að ég blandaði mér í pólitík á Héraði þá hafa verið háværar raddir íbúa í dreifbýlinu um sorphirðu og vetrarþjónustu. Það passar við þá fundi sem ég hef setið og rætt þessi mál.  Krafan frá íbú_DSF2128um í dreifbýli er að þessi þjónusta verði löguð eða í það minnsta staðið við þá samninga sem hafa verið gerðir og þá dagskrá sem gefin hefur verið út, það er góð byrjun. Ítrekað hefur sveitastjórn í sínum svörum bent á verktakann, sem sér um sorphirðu fyrir sveitarfélagið, en ástandið skánar lítið.  Hver er í vinnu hjá hverjum mætti spyrja?

Að laga sorphirðumálin er alls ekki flókið verkefni, stöndum við gefin loforð og metum svo stöðuna hvort það þurfi að bæta í.

Samgöngumál eru okkur afar mikilvæg og verðum við að standa vörð um að fá þær umbætur og framkvæmdir sem eru í vinnslu.  Ein af aðalforsendum hjá mörgum fyrir að samþykkja þá sameiningu sem átti sér stað var að Fjarðarheiðargöng og Axarvegur kæmust á kortið og framkvæmdir myndu hefjast á næstu misserum. Við megum hvergi slaka á í þeirri baráttu!

Við þurfum að ákveða hvar ný Lagarfljótsbrú á að vera og hefjast handa við að skipuleggja það svo það verkefni komist í framkvæmd. Lagarfljótsbrúin ásamt Jökulsá á Fjöllum ( sem er sennilega lélegasta brúin á hringveginum ) eru þess valdandi að Múlaþing er að verða af umtalsverðum tekjum á Seyðisfjarðarhöfn vegna þess hversu léleg burðargetan er á þeim.  Sá þungaflutningur hefur nú færst til Þorlákshafnar.

Framboð Miðflokksins mun beita sér fyrir, því að þessar brýr komist inn á samgönguáætlun.

Í skipulagsmálum þurfum við að hugsa stærra og lengra fram í tímann en hefur verið gert fram að þessu.  Suðursvæðið svokallaða og svæðið innan við Selbrekku býður upp á magnað byggingarland. Við verðum að halda áfram að skipuleggja íbúabyggð, leikskóla og grunnskóla á því svæði.  Mikilvægt er að uppfylla mismunandi þarfir um íbúðastærð og þar sem þörfin er mest teljum við nauðsyn á að byggja íbúðablokkir.

Nú í aðdraganda kosninga birtast loforðin í stríðum straumum frá framboðum í Múlaþingi, athyglisvert er að sjá sömu loforðin frá þeim sem hafa verið í meirihluta mörg kjörtímabil í röð og ekki en haft kjark til að standa við þau. En það virðist virka að dusta rykið af gömlum heitum, því miður

Við þurfum kjark til að breyta og taka ákvarðanir.  Ekki láta blekkjast af loforðum, sem ekki er hægt að standa við.

Ég hvet alla til að nýta kosningaréttinn sinn og sýna kjark með því að setja X við M.

 

Höfundur skipar 2. Sæti á lista Miðflokksins í Múlaþingi.

Hannes Hilmarsson


Kjördagurinn upp runninn

Kosningaskrifstofa Miðflokksins Lyngási 2 Egilsstöðum, er opin á kosningadaginn frá 10:00 til 22: +

Við verðum með kosningakaffi á Egilsstöðum á meðan skrifstofan er opin og í samvinnu við Björgunarsveitina Sveinunga á Borgarfirði í Fjarðarborg frá klukkan 14:00

 


Áttavitinn á ferð og flugi

Auglýsingastandurinn "ÁTTAVITINN" hefur vakið verðskuldaða athygli. 

Nokkrir hafa gert athugasemd við staðsetningu hans á bílastæðum og þessir sjálfskipuðu stöðumæalaverðir hafa verið upplýstir um að bíll og kerra eru í fIMG_2318ullum rétti á bílastæði.

 

 IMG_2317

 

 

 

 

 

 

 

Allra best er þegar ækið hefur verið á ferðinni um bæinn, að þeir bílstjórar sem maður mætir eru eitt sólskyns bros og væntanlega eru þeir glaðir í sinni í kjörklefanum þegar þeir ákveða að setja:

X við Miðflokkinn.

IMG_2314

 

Vonandi nýta sem flestir rétt sinn til að hafa áhrif á stjórn sveitarfélagsins.  Hver og einn ber ábyrgð á sínu atkvæði.  En vitanlega er er best að kjósa Miðflokkinn, því hann vill ekki afhenda Vegagerðinni Íslands skipulagsvaldið, eins og núverandi meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks.

 

X við M og málin eru í höfn.

 


Flutningslínur raforku – Flutningsgjöld raforku – Skattar til sveitarfélagsins.

012Um sveitarfélagið okkar Múlaþing liggja línur frá stórvirkjunum um allt land,norður, suður og austur til að flytja orkuna sem er framleitt á okkar svæði til notenda á öðrum landsvæðum.

Það vakna ýmsar spurningar þegar þetta mál er skoðað. Lögum var breytt fyrir nokkrum árum síðan, þar sem ákveðið var að skilja flutningsgjald raforku frá orkugjaldinu. Þetta þýðir að Landsnet er að taka inn stórar upphæðir af flutningi raforku frá sveitarfélaginu okkar og leggja undir sig mikið land þess vegna. Á Austurlandi er framleiddur helmingur allrar raforku á Íslandi með vatnsföllum í Múlaþingi.

Ég tel að tekjuöflun af þessu tagi eigi að vera skattskyld í okkar sveitarfélagi, þar sem tekjuöflunin fer fram á okkar landi. Með öðrum orðum hluti af því sem tekið er í flutningsgjald raforku og fer eftir línum sem liggja um Múlaþing ætti að fara í sveitarsjóð Múlaþings. Við verðum að berjast fyrir að viðurkennd verði skattlagning okkar á þessa tekjuöflun.

Þetta er eitt af þeim málum sem Miðflokkurinn mund berjast fyrir á komandi kjörtímabili ef hann fær aðstöðu til þess. Ég hvet þig kjósandi góður til að setja krossinn við M í kosningum næstkomandi laugardag

Björn Ármann Ólafsson

Í 4.sæti  M-lista Miðflokksins

Í Múlaþingi


kosning.is með rangar upplýsingar um M-listann í Múlaþingi

Stjórnarráð Íslands er með síðu þar sem má nálgast öll framboðin til sveitastjórna 2022.

Listi Miðflokksdeildar Miðflokksins í Múlaþingi er ekki réttur á þeim lista.  Þar vantar nafn Snorra Jónssonar í 6.sæti listans.  Þar að auki eru heimilisfang Þórlaugar Öldu Gunnarsdóttur ekki rétt.

Búið er að senda athugasemd til stjórnaráðsins, en ef að líkum lætur verður engin leiðrétting framkvæmd fyrr en að níu til fimm fólkið mætir í vinnu á mánudag (9.5.2022).

Hér verður listinn birtur eins og hann var lagður fram:

1Þröstur Jónsson Dalsseli 10Rafmagnsverkfræðingur
2Hannes Karl Hilmarsson   Dalbrún 4Afgreiðslustjóri
3Örn Bergmann JónssonFjóluhvammi 11Athafnamaður
4Björn Ármann Ólafsson Miðvangi 6 Skógarbóndi
5Þórlaug Alda Gunnarsdóttir, Hléskógum 21Verslunarstóri
6Snorri Jónsson    Miðtúni 1Verkstjóri
7Sigurður Ragnarsson Ullartanga 5 Framkvæmdastjóri
8Gestur Bergmann Gestson   BlöndubakkaLandbúnaðarverkamaður
9Halla Sigrún Sveinbjörnsdóttir  Egilsseli 1Tæknistjóri
10Guðjón SigurðssonDalbakka 9Löndunarstjóri
11Benedikt Vilhjámsson WarénHamragerði 3Rafeindavirkjameistari
12Ingibjörg Kristín B GestsdóttirKaupvangi 6Verslunarstóri
13Stefán Scheving Einarsson  Koltröð 15 Verkamaður
14Viðar Gunnlaugur Hauksson  Egilsseli 15Framkvæmdastjóri
15Grétar Heimir Helgason    Hjallaseli 5Rafvirkjameistari
16Sveinn Vilberg Stefánsson  Haugum 2 Bóndi 
17Broddi Bjarni Bjarnason   Furuvöllum 1Pípulagningameistari 
18Rúnar SigurðssonLitluskógum 14Rafvirkjameistari
19Ingjaldur Ragnarsson   Einbúablá 8Flugvallarstarfsmaður
20Sunna ÞórarinsdóttirLagarási 17Eldri borgari
21Sigurbjörn HeiðdalBrekku 6Forstöðumaður áhaldahúss
22Pétur GuðvarðssonFaxatröð 7Garðyrkjumaður

 _DSF2103


Framboðslisti Miðflokksdeildar í Múlaþingi

1. Þröstur Jónsson Rafmagnsverkfræðingur
2. Hannes Karl Hilmarsson Afgreiðslustjóri
2. Örn Bergmann Jónsson Athafnamaður
4. Björn Ármann Ólafsson Leiðsögmaður og skógarbóndi
5. Þórlaug Alda Gunnarsdóttir Verslunarstjóri
6. Snorri Jónsson Verkstjóri
7. Sigurður Ragnarsson Framkvæmdastjóri
8. Gestur Bergmann Gestsson Landbúnaðarverkamaður
9. Halla Sigrún Sveinbjörnsdóttir Tæknistjóri
10. Guðjón Sigurðsson Löndunarstjóri
11. Benedikt Vilhjámsson Warén Rafeindavirkjameistari
12. Ingibjörg Kristín B Gestsdóttir Verslunarstjóri
13. Stefán Scheving Einarsson Verkamaður
14. Viðar Gunnlaugur Hauksson Framkvæmdastjóri
15. Grétar Heimir Helgason Rafvirkjameistari
16. Sveinn Vilberg Stefánsson Bóndi
17. Broddi Bjarni Bjarnason Pípulagningameistari
18. Rúnar Sigurðsson Rafvirkjameistari
19. Ingjaldur Ragnarsson Flugvallarstarfsmaður
20. Sunna Þórarinsdóttir Eldri borgari
21. Sigurbjörn Heiðdal Forstöðumaður áhaldahúss
22. Pétur Guðvarðsson Garðyrkjumaður


Vingulsháttur meirihlutans í Múlaþingi

PastedGraphic-2Í mörg ár hefur verið rætt um atvinnufulltrúa á Fljótsdalshéraði, en framsóknarmönnum hefur tekist að þumbast og slá verkefninu ítrekað á frest.  Fulltrúi Miðflokksinsins flutti að lokum um það eftirfarandi tillögu.

 

Tillaga um Atvinnu-, ferða- og kynningarfulltrúa

Fundur Atvinnu- og menningarnefndar, haldinn 11. febrúar 2019, hvetur til að

ráðinn verði Atvinnu-, ferða- og kynningarfulltrúa fyrir árið 2020.  Gert verði ráð fyrir ráðningu hans við fjárhagsáætlun fyrir árið 2020.

Greinagerð:

Í meðfylgjandi skipuriti er sláandi tómur reitur atvinnu- ferða- og kynningarmála, þar sem öflugur einstaklingur ætti að vera skráður.  Atvinnumálin í víðum skilningi þess orðs, eru stór þáttur í hverju sveitarfélagi og því þarf að gera þeim hátt undir höfði, ekki síst vegna áforma um sameiningu sveitarfélaga.

Fyrsta verkefni slíks atvinnu- ferða- og kynningarfulltrúa væri að skipuleggja atvinnusýningu í Íþróttahúsinu árið 2020 og kalla til atvinnufyrirtæki í framleiðslu, verslun, ferðaþjónustu og annarri þeirri starfsemi, sem kynnir svæðið að hluta eða í heild.  Slíkt verkefni yrði krefjandi fyrir nýráðinn starfsmann, sem fengi að kynnast því sem er í gangi á svæðinu, ræða við stjórnendur fyrirtækja og geta síðan einbeitt sér að nýjum verkefnum og aðstoðað þau sem fyrir eru.  Næsta verkefni er að vinna að framgangi gagnavers.

Afgreiðsla Atvinnu- og menningarnefndar var eftirfarandi:

Atvinnu- og menningarnefnd leggur til að verkefnið verði tekið upp við gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2020. Einnig verði málið tekið til skoðunar í yfirstandandi sameiningarviðræðum sveitarfélaga.

Samþykkt með þremur greiddum atkvæðum, en einn sat hjá (ÍKH).

(ÍKH er Ívar Karl Hafliðason sem skipar nú annað sæti Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi.) 

Afgreiðsla bæjarstjórnar:

Framvindan?  Ekkert gerðist. 

Þökk sé fulltrúum Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Múlaþingi. 

Sömu sviknu loforðin kosningar eftir kosningar.

Eru kjósendur sáttir við slík vinnubrögð?

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband